Persónuvernd
Stutta útgáfan: Fréttahrafninn notar engar vafrakökur, engin auglýsinganet og fylgist ekki með þér á milli vefsíðna. Við teljum heimsóknir nafnlaust til að vita hve margir nota síðuna.
Hver ber ábyrgð?
Harpel ehf., kt. 501105-2790, Bæjarlind 16, 201 Kópavogur rekur Fréttahrafninn og ber ábyrgð á vinnslunni sem lýst er hér. Netfang: harpel@harpel.is.
Hvað er talið?
- Heimsóknir. Þegar þú opnar síðuna búum við til nafnlaust auðkenni úr IP-tölu og gerð vafra, með leynilykli og dagsetningu, og vistum aðeins útkomuna. IP-talan sjálf er ekki vistuð og auðkennið breytist á hverjum degi, svo ekki er hægt að fylgja þér á milli daga. Með því vistum við land og bæ (áætlað út frá netinu), hvort þú notar síma eða tölvu, frá hvaða vef þú komst (t.d. Google eða Facebook), tíma heimsóknar og fjölda flettinga.
- Smellir og birtingar auglýsinga. Við teljum hve oft auglýsingar sjást og hve oft er smellt á þær, og hve oft er smellt á hverja frétt (fyrir listann „Mest lesið“). Þetta eru bara samanlagðar tölur, ekki tengdar neinum einstaklingi.
- Leit. Leitarorð eru notuð til að finna fréttir en eru ekki vistuð.
Gögnum um heimsóknir er eytt eftir 90 daga. Samanlagðar tölur (t.d. „Satis fékk 1.000 birtingar 1. nóvember“) eru geymdar áfram og geta verið sýndar auglýsendum.
Af hverju?
Til að vita hve margir nota síðuna, hvað virkar og til að sýna auglýsendum hve oft auglýsingar þeirra sjást. Vinnslan byggir á lögmætum hagsmunum okkar af því að reka og fjármagna síðuna, og hún er höfð eins lítil og hægt er.
Stillingar í tækinu þínu
Val þitt (t.d. ljóst eða dökkt útlit og síur) er geymt bara í vafranum þínum og er ekki sent til okkar. Þú getur eytt því með því að hreinsa gögn vefsíðunnar í vafranum.
Aðrir sem koma við sögu
- Cloudflare hýsir síðuna og gögnin og vinnur þau fyrir okkur. Cloudflare sér IP-tölur tímabundið til að koma síðunni til þín og verja hana gegn árásum, og telur heimsóknir án vafrakaka.
- Letrið er hýst hjá okkur sjálfum, svo vafrinn þarf ekki að tala við Google.
- Þegar þú smellir á frétt ferðu á vef miðilsins og þá gildir persónuverndarstefna hans. Þegar þú smellir á auglýsingu ferðu á vef auglýsandans og tengillinn er merktur „frettahrafn.is“ svo hann sjái hvaðan þú komst.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að vita hvaða upplýsingar eru unnar um þig og að andmæla vinnslunni. Þar sem við vistum ekki IP-tölur eða nöfn getum við yfirleitt ekki fundið upplýsingar um einstakan lesanda, en hafðu samband ef þú hefur spurningar. Þú getur líka kvartað til Persónuverndar.
Síðast uppfært 24. október 2026.